Heildarhugmynd mín er um aðrar víddir og byrjaði ég á að gera rannsóknarvinnu á hugdettum vísindamanna á öðrum hugsanlegum víddum en þeim sem við þekkjum. Ég kynnti mér eindahraðallinn LHC, eða Large Hadron Collider sem CERN (European Organization for Nuclear Research) er að vinna að. Núverandi stærsti eindahraðall í heiminum er RHIC (Relativistic Heavy Ion Collider) og er í Brookhaven rannsóknarstofunni í Uptown, New York. Margir héldu því fram að sé RHIC settur á fullan kraft gæti hann hugsanlega skapað svarthol og jafnvel hlið inn í aðra vídd. Árið 2005 greindi sjónvarpsstöðin BBC frá því að rúmenski vísindamaðurinn Horaţiu Năstase sem vinnur með RHIC í Brookhaven, hafi óvart skapað „eld-kúlu“ sem líktist svartholi. Hann bjó til eld-kúluna með því að setja hraðalinn á fullan kraft. Framkvæmdir á LHC eru að klárast og verður hann gangsettur í maí 2008, LHC er 7 sinnum stærri og kraftmeiri en RHIC. LHC á að vera notaður til þess að finna kenningarefnið „Higgs boson“, sem á að vera efnið sem bindur allt í heiminum, með því að finna það komast þeir eins nálægt „the big bang“ og hægt er. Meðal þess að finna Higgs boson vonast vísindamennirnir sem vinna að LHC líka til þess að skapa hlið inn í aðrar víddir, ferðast um tíma og margt fleira. Út frá öllu þessu rakst ég á svokallaðar „draumavíddir“; ímyndaðir heimar skapaðir af rithöfundum og öðrum hugmyndaríkum einstaklingum. Draumaheimarnir eru oft fyrir framan nefið á okkur án þess að við höfum nokkurn grun um það. Ég svipaðist enn meir um þessar víddir og rakst loks á draumalandið Oz (The Wonderful Wizard of Oz eftir Lyman Frank Baum). Kansas stelpan Dorothy þeyttist upp í hvirfilbyl og ferðaðist með honum inn í draumalandið Oz. Oz var í „raun og veru“ í Nevada eyðimörkinni í Bandaríkjunum, falin frá mannsauganu. Í Oz eru 5 sýslur, hver sýsla hefur sinn lit (Fjólublár, gulur, rauður, blár og grænn) allt umhverfi og allir íbúar eru í sínum viðeigandi lit eins og sýslan. Verkið mitt notast á við sömu auðkenni og reglur og eru í Oz; litaskiptar „sýslur“, töfrar og síðast en ekki síst draumavídd sem er falin í okkar umhverfi.